MAG komin í verslanir á PS3

MAG komin í verslanir á PS3

Fyrir nokkrum dögum var ég svo heppinn að fá lokaútgáfu af MAG til að prufa og er ég búin að vera spila hann á fullu undanfarna daga. Ég spilaði betuna þegar hún kom og var strax mjög spenntur fyrir loka útgáfu leiksins.

Fyrir þá sem ekki spiluðu betuna þá er þetta gríðarlega metnaðarfullur fjölspilunar leikur í anda Modern Warfare 2 og Bad Company. Býður MAG upp á stórkostlega bardaga þar sem allt að 256 geta barist í einu og geri aðrir betur. Hægt er að velja á milli þriggja herdeilda Valor,SVER og Raven sem hver fyrir sig hefur mismunandi vopn úr að velja og fær maður svo stig fyrir að framfylgja markmiðum og að fella óvini.

Í upphafi leiksins spilar meður sem óbreittur hermaður en ef vel gengur þá koma tækifæri til að hækka í tign og möguleika á að stjórna heilu herdeildunum og að lokum öllum hernum.MAG er framleiddur af Zipper interactive sem þekktastir eru fyrir Socom leikina á bæði PS2 og PS3. Hér er á ferðinni stórgóður fjölspilunar leikur sem aðeins Playstation 3 getur boðið upp á.