God of War 3 bak-endinn sýndur
Bumbuliuz | feb. 02, 2010 | Athugasemdir 0
Á vefsíðu NeoGAF rakst ég á þetta tekið frá Gamestop í Bandaríkjunum og sýnir bakhluta kápunnar af God of War 3 sem kemur í Mars á PS3.
Það er margt hægt að sjá útúr þessari kápu, eins og það verður aukaefni um gerði leiksins á disknum, Challenge of Olympus og Combat Arena sem hefur ekki allt verið útskýrt ennþá. Hvert save er um 5mb og leikurinn styður upplausnirnar 480p, 720p og síðan 1080i. Það er pínu bömmer að sjá þá ekki styðja uppscale upp 1080p. Enn miðað við hvernig leikurinn lítur út almennt sleppur þetta örugglega
Fastur útgáfurdagur fyrir Evrópu hefur ekki enn verið staðfestur, enn miðað við að Bandaríkin fá leikinn 16 Mars er ekki ólíklegt að við fáum hann á svipuðum tíma. Veðjað er á að leikurinn komi 19 Mars.
Bendi síðan á að það er væntanlegur dómur hérna á PSX.is fyrir God of War: Collection sem inniheldur God of War 1 og God of War 2 fyrir PS3.
Popularity: 1% [?]
Skráð undir: Fréttir
Um höfund:


