God of War: Collection

Kynning:

God of War serían ætti ekki að vera ókunn neinum sem hefur átt Playstation vél síðustu árin. Kratos og hans hefndarþorsti hefur gert mikið fyrir Sony og það styttist óðum í God of War III sem kemur um miðjan Mars á PS3.

Í tilefni þess er við hæfi að taka fyrir God of War: Collection sem kom út í Bandaríkjunum fyrir jólin og var flutt inn til landsins enn hefur ekki enn fengið formlega útgáfu í Evrópu ennþá.

Hvað er í pakkanum? Í God of War: Collection God of War I og II í betri upplausn og með lagfærðri grafík og aukaefni. Gow I kom út sumarið 2005 og Gow II kom í Apríl 2007. Það eina sem vantar í pakkann til að gera hann fullkominn væri port á PSP leiknum God of War: Chains of Olympus sem var stórgóður og fyllti uppí baksöguna á seríunni.

Saga:

God of War I segir frá Kratos hermanns frá Spörtu og baráttu hans við Stríðsguðinn Aries sem hann hefur verið í vinnu fyrir síðustu 10 árin. Í miðri orrustu sem Kratos og félagar eru að tapa þá ákallar hann á stríðguðinn og heitir honum lífi sínum í staðinn fyrir að fá að vinna orrustuna og lifa af. Aries tekur boðinu og stígur niður af himni og slátrar öllum andstæðingum Kratos. Í staðinn fyrir að lifa af, verður Kratos verkfæri Aries og fer um Grísku eyjarnar og drepur allt kvikt og þegar líður á árinn verður grimmari og ofbeldisfullari.

Fyrir þá sem hafa ekki spilað fyrsta leikinn (kommon hver er ekki búin af því ennþá? Hoppið þá yfir Sögu partinn hérna) þá ekki lesa meira í bili.

Aries leikur sér að rugla í lífi Kratos til að búa til hinn fullkomna stríðsmann sem er án tilfinninga og hlýðir í einu og öllu. Til að gera það kemur hann á stað atburðarrás sem á að færa Kratos nær honum með dauða fjölskyldu Kratos. Eftir 10 löng ár er Kratos þjakaður maður og búin á því að vera strengjabrúða Aresar og kastar sér framm að kletti bara til að vera bjargað og sagt við hann af guðnum Aþenu að hans verki er ekki lokið. Hann ákveður að fara í blóðuga herferð í gegnum Gríska goðafræði til að komast að Aries og losna undan valdi hans. Á leið sinni kemst hann að öskju Pandóra sem hann þarf til sigra Aries kemst hann af ýmsu um sig og sína fortíð og hvað Aries gerði honum í raun og hvaða hlut hann hafði í dauða fjölskyldu Kratos

God of War II byrjar þar sem að Kratos situr í hásæti stríðsguðsins eftir að hafa drepið Aries í lok fyrsta leiksins og tekið við tittlinum stríðsguðinn. Honum leiðist óendanlega að heyja endalaus stríð frá toppi Ólympusarfjalls svo einn daginn tekur hann sig til og stígur niður í guðaformi á eyjuna Ródos til að hjálpa hermönnum Spörtu og berst sjálfur. Hann er svikinn og Seifi eftir harða orrustu og rændur öllum kröftunum sem hann hafði fengið frá guðunum í fyrsta leiknum og er drepinn. Kratos er frekar harður nagli og lætur ekki stöðva sig að fara niður til helvítis til Hadesar og kemur upp aftur og heitir því að hefna sín á Seifi og guðunum. Hann er máttfarinn og valdalaus og fær aðstoð títanna sem eru andstæðingar Grísku guðanna. Hefst þá önnur blóðug herferð í gegnum Grísku goðin, og að snúa tilbaka því sem Seifur gerði honum þarf hann að finna Örlaganornirnar og snúa tímanum tilbaka og stoppa Seif og bjarga Spörtu þar sem að Seifur slátraði þeim eftir falls Kratos.  Í lok leiksins kemst Kratos að því að hann er sonur Seifs, einn af mörgum sem Seifur hefur eignast í gegnum tíðina. Aþena varar hann við að dreipa Seif þar sem að það muni í raun kalla fram á endalok heimsins og að endurtaka ekki heldur það sem að Seifur gerði Cronos föður sínum.

Í lok leiksins eftir að Kratos er búin að berja pabba sinn Seif í hakk, verður hann fyrir því að drepa óvart Aþenu eftir að hún reyndi að stoppa hann að drepa pabba sinn. Í lok leiksins er Kratos sýndur fara um tímann með örlagaþræðinum til að endurheima Títan risa til að hjálpa sér að berjast við Grísku goðinn og lokasena leiksins er Kratos og félagar að klifra upp Ólympusarfjall til að ná sér niðri á Seifi.

Það er athyglisvert að spila leikina aftur eftir nökkur ár, sagan er enn sterk og goðafræði parturinn var alltaf einn af sterkustu pörtum seríunnar. God of War I er ef eitthvað erfiðari enn God of War II enn á móti er Gow II talsvert pússaðri og betur uppbyggður eins og góðu framhaldi sæmir.

Grafík:

Það var gaman að spila leikina aftur og sjá hve vel þeir líta út eftir allann þennan tíma og sjá hvernig þeir koma út í HD upplausn. Gow safnið styður uppí 1080p upplausn og  ramma á sek.

Gow I er talsvert hreinni og kemur vel út, enn það er Gow II sem nýtur sín gríðalega vel og er ekki langt frá því að líta betur út enn margir PS3 leikir sem komu út í byrjun vélarinnar.

Það sem er hægt að finna að grafík safnins er að vídeóin sem eru gerð af grafíkvél leiksins og gerast á milli atriða í leiknum er vandinn. Það hefur nákvæmlega ekkert gert við þau og ekki einu sinni hækkað í upplausninni og sker það talsvert úr þegar þú ert að fara úr flottum parti leiksins yfir á vídeó í SD upplausn. Cgi vídeón líta ágætlega út ennþá samt. Það er sorglegt að hve góða yfirvinnslu leikurinn fékk að þeir hafi ekki gert neitt við vídeó leiksins sem voru gerð í grafíkvél leiksins. Þetta er mislukkað tækifæri hjá Sony að mínu mati.

Lokaorð:

Það er ekki annað enn hægt að dást að samt heildarpakkanum sem er God of War: Collection er og væri óskandi að aðrar frægar Playstation seríur eins og t.d Ico og Shaddow of Colossus eða Metal Gear Solid fengu svona yfirfærslu. Svo lengi sem að þeir klikka ekki á að uppfæra vídeóin, enn verum ekkert að blekkja okkur. Við myndum samt held ég versla þetta bara til að fá leikina í hærri upplausn og með aðeins betri grafík.

Það er ekki hægt að hugsa sér betri upphitun fyrir God of War III enn að rúlla í gegnum þennan stórgóða pakka sem minnir fólk enn og aftur á gæði seríunnar og hvers konar rosalega ferð við eigum í vændum þegar lokaparturinn í þríleiknum kemur út í Apríl. Ekki sakar síðan að það er aðgangur af E3 demóinu af Gow III og Trophie stuðningur í leiknum.

Ef þú ert God of War aðdáandi og átt báða leikina á PS2 ennþá er þetta spurning, ég tel þetta vera samt þess virði að kaupa aftur, og ef þú hefur aldrei spilað þessa leiki eða bara annan hvort og ert spenntur fyrir God of War III þá er möst að kaupa þennan blóðuga pakka og sjá hvað málið snýst um.

Einkunn: 9 af 10

Skrifað af:Bumbuliuz
© Sveinn A Gunnarsson

Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.


Popularity: 4% [?]

Skráð undir: Innsent efni

Merki:

Um höfund:

RSS-veitaAthugasemdir (2)

Færðu inn athugasemd | Trackback URL

  1. Bolli Magnússon segir:

    Flott, ég vil líka bara benda á að þessi leikur kostar 30$ núna á amazon.com, hlægilegt verð miðað við þessar 12 þúsund krónur sem leikurinn er núna á í elko.

    Thumb up 0 Thumb down 0

  2. Gissur segir:

    Ég er búin að spila 1 og 2 í góðu gömlu ps2 og Þetta eru eitt af bestu leikjum sem ég hef spilað mæli með honum

    Thumb up 0 Thumb down 0