Þegar Mag var fyrst kynntur á E3 árið 2008 varð ég eins og svo margir mjög spenntur fyrir að sjá hvernig Zipper interactive myndi takast til við að gera það sem áður var talið óhugsandi. Fyrstu persónu skotleik þar sem 256 manns gátu spilað saman á einu borði í einu. Án þess að allt fari í algjöra vitleysu og það á PS3. Og nú þegar ég er búin að vera spila leikinn í rúma viku hvernig stendur hann undir væntingum.
M.A.G stendur fyrir „Massive Action Game“ Á hann að gerist árið 2025 þar sem að þrýr einkaherir „Merchanaries“ eru að berjast um olíu og yfirráðasvæði en eins og við er að búast það er ekki nein saga í MAG til að tala um enda samanstendur hann eingöngu af fjölspilun.
Þú byrjar leikin með að velja á milli Valor, Sver eða Raven, hver fyrir sig hafa mismunandi kosti og galla. Raven búa yfir tæknilegustu vopnunum en Sver treysta frekar á öflug en ekki eins fullkomin vopn á meðan Valor er þarna mitt á milli.
Og nú er eins gott að vanda valið þar sem þú færð ekki að spila í nema einni herdeild í einu sem er frekar undarleg ákvörðun hjá Zipper. Þegar þú ert búin að velja hvaða herdeild þú ætlar að berjst með þá færðu að velja hvernig persónan þín í leiknum á að líta út. Valmöguleikarnir sem standa til boða eru frekar einfaldir þar sem eingöngu er hægt að velja á milli fyrirfram áhveðinna persóna og svo er hægt að velja hvernig þú hljómar þegar þú ert að gefa skipanir og slíkt. Allt er þetta frekar einfalt og virkar kannski við fyrstu sýn eins og MAG sé ekki eins góður og vonir standa til en um leið og maður byrjar að spila leikin þá uppgötvar maður hversu rangt það er.
Aðal krækjan í MAG er það að 256 manns geti spilað saman í einu en til að byrja með þá getur þú bara spilað í minni bardögum það er ekki fyrr en þú ert búin að spila í nokkra tíma og hækka upp um level að þú færð að spila stærstu orrusturnar. MAG er byggður upp þannig að þú færð stig fyrir hvern þann sem þú nærð að drepa og eins færðu stig fyrir að ljúka verkefnum sem þinni herdeild eru sett fyrir. Minnir þetta að vissu leiti á Mmo leiki eins World Of Warcraft. Eftir því sem að þú hækkar upp um level þá stendur þér til boða fleiri vopn og margskonar viðbætur fyrir þau. Svo geta allir þegar ákveðnu level er náð spilað sem deildarforingi „Squad leader“ og seinna meir stjórnað allri herdeildinni „Platoon Leader.
Það spilar nefnilega stóran part í leiknum að berjast sem ein heild ólíkt flestum öðrum fjölspilunarleikjum þá hefur þú hag af því að fylgja skipunum sem gefnar eru af deildarforingjanum því betur sem að þú nærð að fylgja þeim því meira færðu af stigum. Og sama er með deildarforingann hann fær stig fyrir að þú fylgir eftir því sem þér er sett fyrir. Þetta er að vissu leiti stærsti kostur leiksins og galli ef að allir spila leikin eins og hann er hugsaður þá er þetta frábær skemmtun. En að sama skapi getur það verið gríðarlega pirrandi þegar allir æða í sitt hvora áttina leikandi Rambo það er ekki bara pirrandi heldur er það trygging fyrir tapi í leiðinni. Eflaust mun það sama gerast með MAG og gerðist með Socom að þeir sem kunna að meta gott samspil „teamplay“ halda áfram að spila leikin á meðan hinir hellast úr lestinni þegar þeir fá leið á öllu saman og fara aftur að spila Call of Duty: Modern Warfare 2 J
Eins og í öllum fjölspilunarleikjum þá skipta borðin miklu máli og í MAG valda þau ekki vonbrigðum. Bæði eru þau gríðarlega stór og fjölbreytt en samt þannig úr garði gerð að þau virka aldrei of stór eða of lítil. Bjóða þau upp það mikinn fjölbreytileika að hvort sem að þú er týpan sem vilt láta lítið fyrir þér fara og nota Sniper riffil úr fjarlægð eða æða á staðinn með byssur á lofti þá hafa þau eithvað fyrir alla. Til að byrja með er hægt að spila þrjú modes Supression,Sabotage og Acquistion.
Supression,Sabotage eru í rauninni venjulegt Deathmatch og Capture/Hold verkefni en Acquistion gengur út að verja eða ná bílum frá andstæðingnum. Svo þegar þú ert búin að hækka upp í level átta opnast fyrir Domination mode það er 256 manna bardagi sem spilast mjög svipað og öll hin modes til samans. Í Domination er herdeildinnni deilt niður í 8 manna hópa „Squads“ og fá allir hópar verkefni til að leysa og svo endar það með einu lokaverkefni þar sem allir berjast saman.
Eins og í mörgum leikjum sem innihalda fjölspilun þá er grafíkin oftast slakari í fjölspilunar parti leiksins og þar sem að MAG er eingöngu fjölspilun borðin gríðalega stór og 256 manns eru að spila saman í einu þá eðlilega hefur það áhrif á grafíkina í MAG það þýðir samt ekki að hann líti ílla út en ef hann er borin saman við leiki eins og Uncharted 2: Among Thieves þá stenst hann ekki samnburðin. Samt stendur hún vel fyrir sínu og sem dæmi að þá hafa þeir bætt grafíkina til muna síðan í betunni. Það fer ekki mikið fyrir tónlist í leiknum og undanskildri tónlist í byrjun leiksins og smá þegar hápunktar í bardaganum eru þá er lítið um hana en sú litla sem finnst passar vel við leikin.
Það má segja að MAG hafi margt fram að færa og er stórt stökk framávið frá Socom seríunni sem Zipper eru frægastir fyrir samt eru það nokkur atriði sem mætti laga. Sem dæmi þá er það furðulegt þegar þú ert með fyrstu persónu leik og býður ekki upp á að stilla upp stjórnun í leiknum eftir því sem hverjum hentar best. Þegar flestir spila leiki eins og Call Of Duty sem hefur nær fullkomnað stjórnun í fyrstu persónu leikjum þá getur það tekið þó nokkurn tíma að venjast nýrri stjórnun of langan tíma fyrir suma. Og fyrir leik sem byggir svo mikið á samskiptum með headsett þá er það furðulegt að það skuli ekki vera selt með leiknum líkt og þeir gerðu með Socom. Og þegar þetta er skrifað þá þjáist leikurin af balance vandamáli sem lýsir sér þannig að Sver herdeildin virðist vera með mun öflugari vopn og betri staðsetningar á borðum þannig að þeir hafa verið að vinna stærstan hluta af bardögunum sem hefur gefið þeim meiri stig sem aftur gerir vopnin enn öflugri og svona hefur boltin haldið áfram. Vonandi mun Zipper Interctive laga þetta sem allra fyrst því að fyrir utan smá galla þá er MAG að koma sterkur inn sem arftaki leikja eins Socom og Warhawk.
Einkunn 7,7 af 10 mögulegum
Skrifað af: ArgoNut
©Jósef Trausti Magnússon
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar





raven ftw!!
Warhawk ftw!!!
Er einhver hérna byrjaður að spila þennan leik? Þætti forvittnilegt að vita hvernig þetta er að virka, svona núna þegar allir 12 ára krakkarnir og þeir sem eru bara plain retards þegar kemur að svona eru byrjaðir að spila þetta, hvort allt plan og það sem ættlast er til að maður geri fari bara í vittleysu afþví það er einn í hópnum sem gerir ekkert sem honum er sagt og hleypur bara í burtu og ættlar að drepa alla.