Í næstu viku kemur út ein besta plata Megadeth og ein af frægari Trash Metal plötum sem hafa verið gefnar út Rust in Peace. Á Þriðjudaginn 9.Febrúar á Xbox 360 og Wii og síðan PS3 þann 11.Feb verður platan í heild sinni gefin út fyrir Rock Band 1 og 2 músík leikinn.
Platan mun kosta 7.49 Pund eða 14.99$
Rust in Peace platan frá árinu 1990 er sú önnur með Megadeth sem kemur út fyrir Rock Band leikina, sú fyrri var „Peace Sells….But Who’s Buying?“ frá árinu 1986. Það vill svo skemmtilega til að það eru 20 ár í Mars frá að Rust In Peace kom út og Megadeth er eimmit að fara á hljómleikaferðalag og með þeim verða Testament og Exodus. Ef að harðir rokkarar væru ekki til í að fórna einu lífæri að sjá þessar 3 saman.
Dave Mustaine aðalsprauta hljómsveitarinnar segir að;
„This record is one of my favorites from my catalogue, and you will see the twists and turns that make Rust In Peace the quintessential Thrashterpiece that it is!“
Ég er búin að vera aðdáendi hljómsveitarinnar síðan rétt fyrir Rust In Peace og hefur þessi plata alltaf verið í mikklu uppáhaldi hjá mér. Ég var heppinn að sjá Megadeth þegar þeir spiluðu á NASA fyrir nokkrum árum og ég fæ enn smá gæsahúð að hugsa til þess, ógleymanlegt og langar svo að sjá þá aftur.
Það verða Hröð riff, flottur söngur og hraði sem ætti líklega að bræða úr Rock Band gítarnum að spila lög eins og Hangar 18, Tornado of Souls, Lucretia ofl lög sem eru spiluð á Expert stillingunni í næstu viku þegar þessi eðal pakki droppar. Trommarar ættu einnig að fá góða líkamsþjálfun að spila. Ég ætla ekki einu sinni að leggja í að syngja þessi lög hahahah.
Þið sem eruð yngri og eru hrifinn að rokki, þá mæli ég innihlega með að kaupa þennan disk bæði í Rock Band og á CD og hlusta á. Jafnvel 20 árum síðar er hann enn aggressívari enn andskotinn og hittir alltaf í mark.
Heimild: Kotaku



Held ég kaupi leikinn útaf þessu, fáranlega góð plata
Rokk eins og það gerist best