Þrí stærstu leikjatölvuframleiðendurnir, þ.a.e.s. Sony, Microsoft og Nintendo hafa gefið út sölutölur fyrir árið 2009 og þar má sjá nokkuð áhugaverða þróun hvað varðar sölutölur yfir PS3. Microsoft hefur í augnablikinu selt 5 milljón fleiri tölvur en Sony á heimsvísu en þeir hafa selt samtals 38.7 milljón Xbox 360 meðan Sony hefur selt 33.5 miljón PS3 vélar. Þó svo að Microsoft hafi þetta forskot á Sony þá bendir ýmislegt til þess að þetta gæti breyst á komandi mánuðum.
Frá því 1. apríl til 31. desember 2009 þá seldi Sony 10.8 milljón vélar meðan Microsoft seldi 8.5 milljón vélar. Nintendo heldur áfram samt sem áður að selja mest af þeim öllum en þeir seldu 17 milljón vélar. Það má því með sanni segja að á komandi mánuðum verði spennandi að sjá hvernig mál þróast. Fyrir neðan má svo sjá lista yfir þessar tölur frá árinu 2009. Eitthvað getur þó breyst ennþá því að mælingar fyrir sölur á árinu 2009 enda 31. mars næstkomandi.
Sony PS2: 5.6
Sony PS3: 10.8
Nintendo Wii: 17.0
Microsoft Xbox 360: 8.5
Heimild: Examiner.com


Sweet