Deus Ex

Fyrir tíu árum gáfu Ion Storm og Eidos Interactive út leik sem átti eftir að breyta því hvernig við litum á þá tegund leikja sem heitir einfaldlega action RPG. Árið 2000 kom þessi leikur sem hálfgerð bylting og sópaði hann að sér ótal ‘Game of the Year’ verðlaunum ásamt því að nánast allir voru sammála um að hér höfðu Eidos hitt naglann rækilega á höfuðið. Nú árið 2010 lítum við aftur til fortíðar og sjáum hvort leikurinn hafi staðist tímans tönn.

Í Deus Ex ferðu með hlutverk JC Denton, nýliða hjá Bandalagi Sameinuðu Þjóðanna gegn hryðjuverkamönnum. Þar er hann sendur út til að finna meðlimi hryðjuverka sveitarinnar National Secessionist Forces (NFS) í New York borg árið 2050 undir stjórn Joseph Manderley. Því lengra sem á söguna líður byrjar Denton smám saman að flækjast í aldagömul samsæri ásamt því að hitta á ferð sinni skáldaðar útgáfur af samtökum eins og: Majestic 12, Illuminati og ákveðnar klíkur frá Hong Kong.

Leikurinn er settur upp sem fyrstu persónu skotleikur en einnig er RPG þátturinn mjög stór partur af spiluninni. Í gegnum leikinn færðu skill points fyrir að finna sérstaka falda staði og fyrir að klára mismunandi verkefni. Þú dreifir síðan þessum skill points í ellefu mismunandi svið, þú getur t.d. einblínt meira á bardagahæfni karaktersins með því að fylla frekar í hversu fær hann er með skotvopn, bæði stór og smá. Hvert svið hefur fjögur kunnáttustig og hækkar kostnaður skill point’a með hverju stigi. Þú uppfærir karakterinn þinn enn frekar með því að finna ákveðin örtækni ílát í gegnum leikinn. Með þeim getur þú öðlast ofurmannlegan styrk, reyndar, þrátt fyrir að það eru átján uppfærslur í boði getur þú aðeins sett upp níu: eina í handleggina, fótleggina, augun og höfuðið; tvær undir húðina; og þrjár í búkinn. Þetta getur skapað ansi erfiðar ákvarðanir þegar kemur að því hvaða uppfærslur þú vilt og í hverju þú vilt sérhæfa þig. Sem betur fer er Deus Ex einn af þeim leikjum þar sem bókstaflega hvaða nálgun sem er virkar, hver kannast ekki við það ástand þegar þú ert búinn að sérhæfa þig í ‘stealth’ en síðan kemur kafli í leiknum sem krefst þess af þér að þú notist við combat hæfileikana.

Þú uppfærir einnig skotvopnin í gegnum leikinn með ‘weapon modifications’ sem þú annaðhvort finnur eða kaupir. Þú getur bætt við hljóðfeyfi, leysir miðara eða sjónauka, ásamt því að geta uppfært svið vopnanna og nákvæmni þeirrra.

Þegar þú skaðast í bardaga neyðistu til að annaðhvort borða ógrynni af ruslfæði eða einfaldlega nota vélmenni til að lækna skaðaða útlimi. Það getur að vísu verið óskaplega ergjandi þegar þú ert á ystu nöf með alla útlimi eldrauða og ekkert vélmenni er sjáanlegt, þar sem ruslfæðið gerir lítið sem ekkert í litlu magni. Leikurinn notast einnig við frekar einfalda birgða geymslu, hún heldur sérstakt marga reiti og hver hlutur tekur frá einum upp í fjóra reiti. Þú þarft síðan að raða og flokka þannig að hver hlutur passar í.

Eins og í flestum RPG leikjum nú til dags fær leikmaðurinn val í gegnum leikinn hvernig bæði sagan og spilunin þróast. Næstum hvert einasta ástand í leiknum gefur þér tvær eða þrjár lausnir og gefur þetta leiknum ótrúlega góða endingu þar sem hver einasti leikmaður fær ólíka upplifun í hvert skipti.

Ion einblíndu mjög á samskipti við aðra karaktera í leiknum, þú færð viðeigandi viðbrögð við ákveðnum svörum, ókurteisi mun t.d. ekki beint hjálpa til við að  fá þá til að vera vingjarnlega. Þeir munu einnig hrósa eða gagnrýna hegðun þína þegar kemur að því hvernig þú höndlar hættluegar aðstæður, svona kemur siðferðiskerfi leiksins til að vera.

Eins og ég nefndi hér áðan, þá spilast leikurinn á svipaðan hátt og flestir FPS leikir. Oftast ertu á móti heilum hóp af óvinum, þá kallar á meira taktíska nálgun til að komast lífs af. Með þessu lærir leikmaðurinn virkilega að nýta sér ‘stealth’ eiginleikann, en reyndar er hægt að skapa karakter sem er hálfgerður ‘tank’ með því að notast við örtækni ílátin og skill point’in. Sjálfur myndi ég ekki kjósa þessa aðferð, þar sem hún dregur leikmanninn ekki eins mikið inn, það sem heillar mest (mig að minnsta kosti) er hversu ótrúlegar aðstæðurnar geta orðið: Þú ert á bláþræði þegar kemur að lífi, hniprar þig í horni með aðeins eitt skot eftir í skammbyssunni þinni, tveir verðir eru á leiðinni frá báðum áttum og þú veist að þú getur aðeins fellt annan þeirra áður en hinn setur viðvörunnarkerfið af stað. Þetta kemur adrenalíninu svo af stað að af hálfu væri nóg.

Að auki notastu við HUD ‘crosshair’ sem segir þér nokkurnveginn hve vel þú munt hitta, eða jafnvel hvort þú hittir yfir höfuð. Crosshair’ið stækkar eftir því sem þú hreyfir þig og minnkar hægt ef ekkert er gert sem gerir þér kleift að fá nokkur verðskulduð ‘headshot’. Það eru 24 vopn samtals í leiknum, allt frá kúbeinum, óbanvænum vopnum og slökkvitækjum, til eldvarpna og hríðskotabyssa.

Í gegnum leikinn getur þú síðan lesið allskonar bréfmiða og tölvuskrár, sem og fréttir úr tímaritum og bækur sem finnast víða um leikinn. Þessar upplýsingar í litlu magni þjóna margvíslegum tilgangi, allt frá því að segja leikmanninum frá hjálplegum ‘gameplay’ upplýsingum, til þess að ýta sögunni áfram, einnig hjálpar þetta gífurlega við að skapa rétta andrúmsloftið.

Til að summa upp, þá er flest allt við leikinn yfir meðallagi og þeir sem eru vanir leikjum eins og System Shock, Fallout 1-3 og Mass Effect ættu að geta komið sér fyrir strax. Reyndar er grafíkin það eina sem hefur ekki elst vel. Hreyfingarnar geta verið ansi stífar og er allt frekar kassalagað. Þegar kemur að hljóðinu er leikurinn líka svolítið að sikk sakka, öll umhverfishljóð eru í hæsta gæðaflokki en það er aðallega talsetningin sem fer í mig. Flestir leikaranir standa sig með prýði en á móti því eru aðeins of margir með hallærislegan hreim. En ef þú getur leitt framhjá þér grafíkina og nokkrar hlægilegar talsetningar þá muntu komast að því að hér er á ferðinni einn af bestu action RPG leikjum allra tíma og algjör skyldu-upplifun.

Lokaeinkun: 8/10

——–||——–  9.5/10 Hefði ég dæmt hann fyrir 10 árum.


Popularity: 28% [?]

Skráð undir: Innsent efni

Um höfund: Já Róbert heiti ég. Ég hef brennandi áhuga á kvikmyndum og öllu tengt þeim og einnig er ég að fikta í tölvum, ef það er eitthvað addið mér bara á msn, armenski28@hotmail.com :)

RSS-veitaAthugasemdir (2)

Færðu inn athugasemd | Trackback URL

  1. Bumbuliuz segir:

    Brilliant leikur í dag og einn af þeim sem hafði mikil áhrif á aðra. Vel þess virði að spila en í dag.

    Thumb up 0 Thumb down 0

  2. Ég er ný byrjaður að spila hann núna eftir ég las þetta hjá þér :)

    Thumb up 0 Thumb down 0