3D Dot Game Heroes

3D Dot Game Heroes er ævintýraleikur frá FROM Software (sömu og gerðu Demon´s Souls) af gömlu gerðinni eins og þeir gerast bestir. Hann fylgir formúlu sem hefur löngu verið fullkomnuð í Zelda leikjunum en kemur samt með eitt og annað nýtt líka. Leikurinn spilast eins og gömlu Zelda leikirnir en hefur fengið talverða andlitlyftingu, gengur það oftast mjög vel upp en einstaka sinnum en sjónarhornið ekki nógu gott. Hægt er að stilla sjónarhornið á nokkra vegu sem og litina í leiknum en það mjög þægilegt að þurfa ekki að þurfa ekki að fikta í litastillingunum á sjónvarpinu. Einnig er hægt að velja um mismunandi kalla til að spila (hægt að skipta í hvert skipti sem maður hleður leik) en munurinn milli þeirra er minniháttar, aðallega útlislega þegar fram í sækir en einnig er hægt að búa til sinn eigin kall.

Söguþráður leiksins er ekki flókinn og snýst um sex töfrahnetti sem galdramaðurinn Fuelle hefur stolið í ríkinu Dotniu og þarf að endurheimta þá ásamt því að gera málin upp við Fuelle. Töfrahnettirnir eru allir geymdir í dýflissum víðs vegar um landið og er ákveðið þema í hverri dýflissu, þetta er alltaf eitthvað klassískt eins og eldur, vatn o.s.fr. Einnig bætist í vopnabúrið við hvern hnött sem er finnst en þeim fylgir einn galdur sem nýtist á ferðinni.

Eftir því sem farið er í gegnum dýflissurnar verður maður öflugri og fær sömuleiðis nýja hluti, sem eru þessi hefðbundnu eins og bogi, sprengjur, togvír o.s.fr., þó er hæglega hægt að missa af sumum þeirra ef ekki er farið um allar dýflissurnar en í flestum dýflissunum eru litalæstar hurðir sem ekki er hægt að komast í gegnum í fyrstu heimsókn heldur þarf að útvega lykla annars staðar í leiknum hjá ákveðnum lyklasmið en hann verður bara ekki á vegi manns nærri því strax. Lyklarnir eru hinsvegar mjög dýrir og hægt er að komast hjá þessu með því að leysa ákveðið verkefni í leiknum og fá ofurlykil sem opnar allar litamerktar hurðir en ágætis tími fer í að leysa það verkefni. Flestar aðrar uppfærslur eru með hefðbundnum hætti og í Zelda til að fá meira líf eða til að geta fengið meiri galdraorku (snýst bara um að finna ákveðna hluti), það helsta sem er öðruvísi við þennan leik eru sverðin en þó nokkur fjöldi ólíkra sverða er í leiknum og er hægt að uppfæra þau á þann veg að þau verða lengri, breiðari, gera meiri skaða eða getað farið í gegnum hluti. Gallinn er hinsvegar sá að þetta hefur að miklu leyti ekkert að segja nema maður sé með fullt líf, þá getur fulluppfært sverð hæglega fyllt út skjáinn en fer niður í eðlilega stærð við fyrsta skaða. Þetta er svona skemmtilega öðruvísi, sverð leiksins er hægt að finna á ýmsum stöðum en einnig er hægt að kaupa þau af aðila síðar í leiknum fyrir frekar sjaldgæfa kubba sem hægt er safna í gegnum spilun leiksins og borgar sig því að vanda valið ef til stendur að eyða þeim.

Einnig eru þrjár gerðir af smáleikjum sem hægt er að fara í með því að tala við ákveðnar persónur í leiknum og geta verðlaunin hæglega verið þess virði að taka þátt. Smáleikirnir eru „Dash Circuit“, „Blockout“ og „Block Defense“. Í „Dash Circuit“ þarf að hlaupa ákveðna braut en hraðinn eykst í hvert skipti sem er tekin beygja. Í „Blockout“ þarf að stýra bolta á mismunandi litaða kassa til að eyða þeim. „Block Defense“ er turnvarnarleikur sem spilast svipað eins og Pixeljunk Monsters. Hægt er að eyða ógrynni af tíma í þetta og sömuleiðis í ýmis konar aukaverkefni en fyrir mína parta fannst mér slatti af þeim ekkert spes þar sem þetta snerist oft bara um að tala við fólk og hægt að leysa þær án þess að ætla sér það, kom fyrir mig tvívegis. En inn á milli eru býsna skemmtileg aukaverkefni sem jafnframt gera manni lífið léttara í dýflissum leiksins.

Hægt er að storma bara beint í gegnum dýflissur leiksins og klára hann þannig en svo var ekki í mínu tilfelli, það er bara einhver söfunarárátta sem kemur upp þegar ég spila svona leiki og finnst mér eiginlega skemmtilegra að fara um kortið og leita að földum hlutum en takast á við dýflissurnar. Það er bara af nægu að taka í þessum leik og flest allt af því heppnast ágætlega. Grafíkin er alveg ágæt eins langt og hún nær en leikurinn hefði samt notið sín mun betur ef hann hefði verið t.d. Cel Shaded eins og Zelda Windwaker, tónlistin er skemmtilega retró og passar fullkomlega með leiknum.

Það er hægt að fá heilmikla spilun útúr þessum leik og sömuleiðis hafa mjög gaman af henni í leiðinni, þrátt fyrir að leikurinn virki einfaldur að sjá þá er merkilega mikil dýpt í spiluninni og klárlega verið lögð mikil vinna í hann, skemmtilegt afturhvarf í HD dýrkuninni. Ég mæli því eindregið með að fólk gefi honum séns, það er eiginlega ekkert annað líkt honum á PS3.

8/10

Skrifað af: Pellaeon ©
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.


Popularity: 21% [?]

Skráð undir: Innsent efni

Um höfund:

RSS-veitaAthugasemdir (1)

Færðu inn athugasemd | Trackback URL

  1. megaman segir:

    Flott gagnrýni hjá þér! Sammála með grafíkina, Cel-Shaded hefði hentað leiknum vel. Tónlistin er brilliant og leikurinn er afturhvarf til fortíðar fyrir Zelda fanboyinn – nostalgíutripp. Skemmtilega öðruvísi PS3 leikur, eins og að spila The Legend of Zelda 1.5. Ég hefði gefið honum 9.0.

    Thumb up 0 Thumb down 0