Monkey Island 2 : LeChuck´s Revenge
pellaeon | júlí 13, 2010 | Athugasemdir 1
Monkey Island 2 : Lechuck´s Revenge kom út nýverið á PSN en þetta en fyrri leikurinn er þegar fáanlegur og hefur verið skrifuð umfjöllun um hann sem má sjá hér :
http://www.psx.is/2010/05/10/2675/
Monkey Island 2 kom upprunanlega út árið 1991 eða ári á eftir fyrsta leiknum. Leiksins var beðið með gríðarlegri eftirvæntingu og fékk hann frábæra dóma á sínum tíma. Grafík leiksins hafði verið bætt umtalsvert frá fyrsta leiknum sem og tónlistin en Monkey Island 2 var fyrsti leikurinn frá Lucasarts sem notaði IMUSE hljóðkerfið en þar breyttist tónlist leiksins eftir því hvað var í gangi hverju sinni og þótti það heppnast mjög vel auk þess sem tónlistin sjálf passaði afar vel við leikinn. Leikurinn notaðist sömuleiðis á við SCUMM leikjavélina, eins og fyrsti leikurinn, en Lucasarts notaði þá leikjavél við gerð margra ævintýraleikja á síðustu öld.
Erfiðleikastig Monkey Island 2 er einnig talsvert hærra en í fyrsta leiknum og skýrist það af því að á sínum tíma var hægt að velja á milli 2ja erfiðleikastiga í spilun leiksins en í endurgerðinni er einungis hægt að spila erfiðari útgáfuna. Púrítanar hafa fett fingur út í þetta þar sem verið er að eiga við upprunanlegu útgáfuna og því ekki um fullkomna endurgerð að ræða en í raun skiptir þetta litlu máli, auðveldari útgáfan var full létt en þetta hefði hinsvegar horft allt öðru vísi við ef erfiðari útgáfan hefði verið skorin frá. Núna er einnig er hægt að spila leikinn með umsögn hönnuða hans og er oft gaman að heyra pælingar þeirra samhliða spilun en umsögnin breytist í samræmi við framgang manns í leiknum.
Lítilsháttar spoilerar eru í umfjölluninni fyrir neðan um söguþráð leiksins.
Leikurinn hefst á því að Guybrush Threepwood, söguhetja leikjanna, er í heldur betri málum en í upphafi fyrsta leiksins þó að frægðin hafi eitthvað látið standa á sér. Með vasa fulla af fé leitar hann næsta ævintýris sem er risastóri fjársjóðurinn The Big Whoop, sælan endist þó ekki lengi því í byrjun leiksins kemur Largo LaGrande til sögunnar og rænir öllu af Guybrush sem er því kominn aftur á byrjunarreit og nánast einu upplýsingarnar um fjársjóðinn The Big Whoop eru nafnið á honum, heldur betur glæsileg staða en því miður ekkert nýtt fyrir Guybrush sem virðist afar laginn við að koma sér í vandræði.
Leikurinn skiptist í 4 kafla (1. The Largo Embargo, 2. The Four Map Pieces, 3. LeChuck´s Fortress og 4. Dinky Island), fyrstu tveir kaflarnir eru nokkuð langir en seinni tveir að sama skapi mjög stuttir. Fyrsti kaflinn snýst um að komast af Scabb Island þar sem áðurnefndur Largo LaGrande hefur bannað siglingar til og frá eyjunni nema gegn háu gjaldi sem enginn getur greitt. Við að leysa úr þessu hjálpar Guybrush honum Largo að endurvekja LeChuck sem er heldur betur ákveðinn í að ná fram hefndum en það kemur í ljós að Largo var hægri hönd LeChuck. Að sjálfsögðu var þetta ekki ætlun Guybrush en lýsir kannski best seinheppni hans. Leikurinn spilast í áframhaldinu á nokkrum eyjum svipað og sá fyrsti, þó er það aðeins öðruvísi þar sem stundum er hægt að ferðast á milli eyjanna við að leysa þrautir en í fyrsta leiknum var maður alltaf bundinn við eina eyju í einu sem gerði spilun og þrautalausn mun einfaldari.
Grafík leiksins hefur verið uppfærð og lítur hann talsvert betur út en endurgerð The Secret of Monkey Island. Tónlistin og tal er sömuleiðis mjög vel gert. Einnig hefur ýmsum smáatriðum verið breytt sem var kvartað yfir í endurgerð fyrsta leiksins. Sem dæmi má nefna að nú er hægt að hlusta á tal ef menn kjósa að spila upprunanlegu útgáfu leiksins (hægt er að skipta hvenær sem er á milli upprunanlegu útgáfunnar og endurgerðarinnar með því einu að ýta á select) og einnig er hægt að stýra Guybrush með analog pinnanum í stað þess að þurfa að benda á allt með örinni. Fleira hefur verið fínpússað í stjórnun leiksins og er hún yfirleitt með ágætum en stundun getur hún verið hálf ónákvæm, það er sem betur fer sjaldan sem það gerist en getur verið mjög pirrandi þegar það gerist. Hægt er að fá vísbendingar, eins og í endurgerð fyrsta leiksins, með því að ýta á kassa sem er mjög þægileg lausn og einnig hefur verið bætt við þeim valmöguleika að lýsa upp þá hluti á skjánum sem hægt er að eiga við á e-h hátt með því að ýta á L1 og með því er hægt að komast hjá því að missa af hlutum. Það er því hin fínasta hjálp innbyggð í leikinn sem virkar mjög vel. Vísbendingarnar byrja frekar óljósar en skýrast hratt ef beðið er um fleiri þar til það er hreinlega sagt hvað á að gera næst. Það getur verið mjög freistandi að gefast upp of snemma og óska bara eftir vísbendingu en fólk innilega hvatt til þess að nýta sér þetta bara í neyð og reyna njóta leiksins
Eins og í fyrsta leiknum er mikill húmor og er hann síst verri í þessum leik en flestir eru sammála um það að Monkey Island 2 sé besti leikurinn í seríunni, er auðveldlega hægt að taka undir það og ástæðan fyrir því er einföld, það er einfaldlega meira af öllu sem gerði fyrsta leikinn svona góðan auk þess sem grafíkmunurinn á sínum tíma var mjög mikill. Fyrir mína parta er erfitt að gera upp á milli þessara tveggja leikja, þeir eru báðir mjög góðir. Það er samt augljóst að meira hefur verið lagt í endurgerð seinni leiksins.
Leikurinn er samt ekki alveg fullkominn en stjórnun hans getur valdið talsverðum pirringi og lausn sumra þrauta er alls ekki augljós og síður en svo rökrétt, heilt yfir eru þetta samt smáatriði sem draga leikinn bara tímabundið niður meðan á þeim stendur og gleymast fljótt. Hann er ekki heldur neitt svakalega langur en flestir ættu að geta farið í gegnum hann á ca. 10 tímum ef vísbendingar eru hóflega notaðar, hinsvegar er afar líklegt að menn vilji renna í gegnum hann aftur þó að það verði kannski ekki alveg um leið og fyrsta spilun endar.
Niðurstaðan er einföld, kaupið Monkey Island 2 strax í dag og farið í gegnum eitt skemmtilegasta ævintýri allra tíma! Ekki er verra að vera búinn með fyrsta leikinn, sem er síst lakari, það gerir spilun seinni leiksins bara skemmtilegri.
Leikurinn er fáanlegur á Playstation Network og kostar £ 7.99 eða $ 9.99 eftir því hvor búðin er valin.
9/10
Skrifað af: Pellaeon ©
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.
Popularity: 43% [?]
Skráð undir: Innsent efni
Um höfund:





Búinn að spila hann virkilega góður leikur