Mega Man Universe

Eins og mörgum er eflaust kunnugt hafa Mega Man leikirnir notið heilmikilla vinsælda alla tíð og þá ekki síst nú undanfarið eftir að Mega Man 9 og 10 voru gefnir út á PSN. En núna eru framleiðendurnir ekki bara að fara taka næsta skrefið heldur verður það stærsta skrefið í sögu leikjanna.

Vefmiðlar hafa mikið rætt um þetta málefni og segja margar að þetta muni líklegast vera eitthvað byltingarkenndasta atvik í sögu klassískra leikja og muni gera líf þitt en Mega-ðra en áður.

Eins og Kenji Inafune (yfirmaður rannsóknar og framleiðsludeildar Capcom) orðaði það ; „Við erum himinlifandi að geta opinberað Mega Man Universe. Þessi leikur mun brjóta þá hefð sem leikirnir hafa byggt upp og ég trúi því að aðdáendur leikjanna muni loks fá að upplifa sína villtustu Mega Man drauma rætast.“

Hér fyrir neðan er linkur á sýnishornið sem gefið var út með tilkynningunni og kvet ég alla til að horfa á það og láta sínar skoðanir í ljós hér fyrir neðan.

Download Video

Takk fyrir að lesa að þessu sinni, þangað til næst
Arnar.


Popularity: 10% [?]

Skráð undir: Fréttir

Um höfund:

RSS-veitaAthugasemdir (0)

Trackback URL

Comments are closed.