Hitman 5 á næsta leiti?
nautakjot | júlí 23, 2010 | Athugasemdir 0
Eurogamer tilkynntu í dag að, samkvæmt áræðanlegri heimild innan veggja IO Interactive, næsti leikur í Hitman seríunni myndin koma „at the very earliest Christmas next year“. Þetta var staðfest af fleiri heimildum og vilja meina að það verður mjög líklegt að leikurinn komi seinna árið 2011.
Í júní á síðasta ári greindi tímaritið Variety frá því að önnur Hitman mynd væri í framleiðslu og að næsti Hitman leikur myndi taka mikið af sögunni út frá henni. Síðar gaf einn framkvæmdastjóri hjá IO út tilkynningu;
„I can tell you that there is no way we will be basing a storyline for a new Hitman game on the story in a licensed movie. That’s just not how we work so you shouldn’t be concerned about that.“
Fyrr í vikunni komu síðan tvö veggspjöld upp sem talið var að hefðu eitthvað að gera með nýja leikinn, IO sögðu síðar að veggspjöldin tengdust ekki nýja leiknum og hafa fjarlægt þau.
Popularity: 69% [?]
Skráð undir: Fréttir
Um höfund: Já Róbert heiti ég. Ég hef brennandi áhuga á kvikmyndum og öllu tengt þeim og einnig er ég að fikta í tölvum, ef það er eitthvað addið mér bara á msn, armenski28@hotmail.com :)



