Resistance 3 sést á heimasíðu söluaðila
nautakjot | júlí 23, 2010 | Athugasemdir 0
Rafræna viðskiptasíðan eStarland.com birtu fyrir stuttu að Resistance 3 væri til sölu og kæmi út 24. mars 2011. Ef litið er vel á hulstur leiksins er hægt að sjá glitta í Frelsistyttuna sem gefur til kynna að leikurinn muni gerast í New York borg.
Sony hafa ekki enn tilkynnt leikinn, hvað þá birt myndir úr honum. Hann hefur verið í lausu lofti alveg síðan hann birtist á könnun hjá Sony í mars síðastliðnum og hefur lítið sem ekkert komið um hann. Auðvitað er alltaf möguleiki að við fáum að sjá leikinn á gamescom sem verður frá 18. til 22. ágúst næstkomandi. Þangað til verðum við að bíða þolinmóð.
Popularity: 40% [?]
Skráð undir: Fréttir
Um höfund: Já Róbert heiti ég. Ég hef brennandi áhuga á kvikmyndum og öllu tengt þeim og einnig er ég að fikta í tölvum, ef það er eitthvað addið mér bara á msn, armenski28@hotmail.com :)





