Street Fighter IV VS Tekken tilkynntur!

Þá er það staðfest, SFIV VS TEKKEN er á leiðinni. Leikurinn er gerður með SF grafíkvélinni og verður þessvegna með sama útlit og fyrrnefndi leikur. Nokkur skjáskot eru komin út, og má sjá þau hér fyrir neðan. Leikurinn mun einnig vera með tag-team-fighting sem virkar þannig að maður tekur með sér 2 leikmenn í hvern bardaga. Efast ég um að hann verði aðeins þannig, eins og Tekken Tag Tournament var, og muni styðja venjulegt 1 on 1 líka.

En eins og ég nefndi í fyrri frétt þá er Capcom og Namco að vinna á 2 leikjum, þannig að það gæti vel verið að við munum líka sjá Tekken VS Street Fighter. Þó að það gæti litið út sem peninga svindl fyrir marga, þá væri það alls ekki þannig. Málið er að Tekken og SFIV eru gerðir á 2 mismunandi vélum, þannig að bæði útlitið og spilunin eru allt öðruvísi. SFIV býður uppá 2-D spilun og Tekken býður uppá 3-D spilun. Gaman væri að sjá báða leikina koma út. Ég myndi líklegast kaupa Tekken útgáfuna, ef hún skyldi koma.

Gamesradar


Popularity: 42% [?]

Skráð undir: Fréttir

Um höfund: Þessi sem þú dáir mest af öllum

RSS-veitaAthugasemdir (0)

Trackback URL

Comments are closed.