Deathspank
pellaeon | júlí 26, 2010 | Athugasemdir 1
Deathspank er nýjasti leikur Ron Gilbert sem er einna þekktastur fyrir hlutdeild sína í Monkey Island leikjunum og er alltaf stutt í grínið í Deathspank þrátt fyrir að ná ekki sömu hæðum.
Deathspank er söguhetjan og er söguþráðurinn á þá leið að Deathspank hefur allt sitt líf leitað að the Artifact og unnið mörg þrekvirki á leiðinni. Leikurinn hefst þegar stutt er eftir af þeirri þrautagöngu og munurinn innan seilingar. Að sjálfsögðu grípa svo örlögin inn í og muninum er rænt. Meginmarkmið leiksins er því að ná gripnum til baka úr höndum Von Prong lávarðar.
Leikurinn er klassískur hack n´ slash en talsvert opnari en gengur og gerist með þannig leiki. Yfirleitt er það þannig að markmiðið er að fara frá A til B og drepa allt þar á milli en kortið í Deathspank er talsvert opnara og frekar að það séu of öflugir óvinir sem varna manni leið en að kortið sjálft sé óaðgengilegt, minnir reyndar að kortið opnist í þrennu lagi. Óvinir leikisins eru fjölbreyttir og í samræmi við það landsvæði sem er ferðast um hverju sinni en þau eru : Enchanted Forest, Pluckmuckel, Haunted Forest og Von Prong Castle en landsvæðin skiptast svo upp í minni einingar innbyrðis.
Óvinirnir eru afar vel heppnaðir og alltaf var það þannig að þegar leikurinn var farinn að hallast yfir í það að verða of auðveldur var nýr óvinur kynntur til sögunnar sem hélt manni á tánum, reyndar er það nú þannig að sumir óvinir eru alltaf erfiðir og geta drepið mann með nokkrum höggum jafnvel þegar maður er kominn á 20. stig en þar hættir maður að safna reynslu. Sumir óvinanna eru einnig meinfyndnir í útliti og hegðun.
Munir leiksins eru einnig gríðarlega margir og ýmsar gerðir af vopnum, brynjum, göldrum og seyðum til að drekka. Hægt er að vera með allt að 8 hluti tilbúna til notkunar með því einu að ýta á einhvern örvatakkanna eða hina fjóra venjulegu (kassi, þríhyrningur, X og hringur) og með því að finna ákveðna rúnasteina er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að tvinna saman notkun á vopnum til að ná fram sérstaklega öflugum árásum. Mörg vopnanna eru einnig gædd ýmis konar töframætti og henta því betur gegn ákveðnum gerðum óvina. Bardagakerfi leiksins er því frekar einfalt enda einungis hægt að framkvæma eina árás með hverju vopni, það er samt ótrúlegt hvað bardagarnir urðu seint þreyttir en maður var kominn með svona passlega nóg fyrir rest enda 4.533 óvinir í valnum í mínu tilfelli. Einnig er hægt er að fá takmarkað magn af nokkrum göldum í leiknum, svo sem loftsteinaregn og varnarskjöld. Galdrarnir eru ekki margir en vel heppnaðir. Seyði leiksins eru fjölbreytt og geta til dæmis bætt hittni eða vörn, samt ekkert sem hefur ekki sést áður í tölvuleik. Brynjur leiksins samanstanda af nokkrum hlutum og er þægilegt að leikurinn býður uppá það að klæða Deathspank ávallt í besta brynjupart sem völ er á hverju sinni, sparar það slatta tíma að þurfa ekki að velta þessu of mikið fyrir sér. Vopn, galdrar og seyði koma einnig í langflestum tilfella í þremur mismunandi styrkleikaflokkum.
Þrátt fyrir að aðalmarkmið leiksins sé fremur einfalt þá þarf að sjálfsögðu að fara ýmsar krókaleiðir í áttina að Von Prong lávarði auk þess sem möguleg hliðarverkefni hlaupa á fleiri tugum og eru oft þess virði að taka að sér vegna verðlaunanna. Hægt er að fá vísbendingar um lausn verkefna en það er þó ekki ókeypis heldur notar maður spákökur sem finnast víða fyrir hverja vísbendingu, þær eru þó mun færri heldur en allar vísbendingar leiksins. Þetta er mun skemmtilegri nálgun heldur en í Monkey Island þar sem vísbending er bara einum freistandi takka í burtu.
Leikurinn er stórgóð skemmtun og vel heppnaður á flestum sviðum, það er jafnþægilegt að detta inn í hann í smástund í einu eða nokkra klukkutíma þess vegna, ótvíræður kostur í mínum huga en samtals tók það um 10 tíma að klára leikinn og fá alla trophies í leiðinni. Leikurinn er þó ekki gallalaus og er langlangstærsti ókosturinn sá að 2ja manna spilun er döpur og dregur það hann mest niður. Ástæðan er sú að hinn spilarinn tekur sér hlutverk galdrakarls sem hefur fjórar fastar árásir og getur ekki notað annað, það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir gott local co-op og þarna var illa farið með gott tækifæri. Það eru fleiri atriði sem draga leikinn niður eins og reynsluspilin sem maður fær við að fara upp um hvert stig, fyrst telur maður að þetta sé eins og í öðrum leikjum að maður sé að sérhæfa sig en í raun þá ræður maður eingöngu í hvaða röð maður velur spilin því þegar maður er kominn á 20. stig þá eru öll spilin búin. Þrautir leiksins hefðu einnig mátt vera fleiri þar sem þær eru vel heppnaðar en þær eru afar fáar.
Heilt yfir er þetta samt góður leikur sem auðvelt er að mæla með en að sama skapi pirrandi því hann hefði getað orðið frábær með betra co-op.
Leikurinn er fáanlegur á PSN og kostar 9.99₤ eða 14.99$ eftir því hvor búðin er valin.
8/10
Skrifað af: Pellaeon ©
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.
Popularity: 79% [?]
Skráð undir: Innsent efni
Um höfund:





góð grein. ég prófaði demoið af leiknum í gær og hann virkar geðveikt skemmtilegur;) vinur minn ætlar að kaupa hann í ps tölvuna sína;)