The Darkness 2 hugsanlega með nýjan framleiðanda
nautakjot | júlí 27, 2010 | Athugasemdir 0
Fréttasíðan superannuation.com greindi frá því fyrr í vikunni að leikja framleiðandinn Digital Extremes myndi sjá um framhaldið af The Darkness, en upprunalegi leikurinn kom út um sumarið 2007.
Framhaldið var fyrst formlega afhjúpað á Comic Con 2009 og um sama leyti tilkynntu Starbreeze að þeir myndu ekki koma nálægt The Darkness 2.
„I heard that there were talks about a Darkness sequel, but Starbreeze is not involved in anything like that right now. We are busy on two projects together with EA,“ sagði forstjóri Starbreeze, Johan Kristiansson, aðspurður.
Þrátt fyrir brottför Starbreeze frá leiknum eru Digital Extemes engir nýgræðingar. Þeir sáu alfarið um multiplayer hluta BioShock 2 ásamt því að hjálpa til við að gera upprunalega BioShock og einnig Unreal leikina.
Sjálfur elska ég fyrsta Darkness leikinn og tel hann vera með betri leikja upplifunum í langan tíma og hef ég fulla trú á Digital Extremes. Síðan mun Paul Jenkins líklegast snúa aftur sem rithöfundur leiksins þannig það er gott að vita að framhaldið sé í mjög góðum höndum.
Popularity: 25% [?]
Skráð undir: Fréttir
Um höfund: Já Róbert heiti ég. Ég hef brennandi áhuga á kvikmyndum og öllu tengt þeim og einnig er ég að fikta í tölvum, ef það er eitthvað addið mér bara á msn, armenski28@hotmail.com :)



