1. Hér skal einungis fara fram sala, kaup og skipti á Playstation tengdum vörum og tæknihlutum. Er þá bæði átt við PS1, PS2, PSP og PS3. Bannað er með öllu að auglýsa til sölu eða til kaupa moddaðar PS1, PS2, PS3 eða PSP vélar og skrifaða leiki. ÍPS hefur ákveðið að veita ótímabundna reynslu á að auglýsa ýmsar tæknitengdar vörur á Markaðinum. Sömu reglur gilda um aðrar leikjavélar sem búið er að breyta (modda).
2. Hvorki stjórnendur þessa spjallsvæðis né aðrir aðilar, svo sem hýsandi vefsetursins, bera nokkra ábyrgð á viðskiptum sem fara fram hér á Markaðinum.
- Viðskiptaaðilar (kaupendur og seljendur) bera alfarið ábyrgð á sínum viðskiptum.
3. Komi upp ágreiningur er það á ábyrgð viðskiptaaðila að leysa úr honum. Það er EKKI í verkahring stjórnenda þessa spjallsvæðis að aðstoða seljendur við að innheimta fé frá kaupendum sem hafa svikist undan borgun. Þetta á einnig við ef varan er ekki afhent í umtöluðu ástandi við kaup eða skipti.
4. Eftirfarandi grundvallarupplýsingar skulu koma fram í auglýsingu:
Titill skal vera skýr og skilmerkilegur, "Til sölu/Óska eftir: God Of War" en ekki "PS2 leikur til sölu!/Langar í einn leik!". Ef um er að ræða langan lista af vörum gengur slíkt að sjálfsögðu ekki, í þeim tilvikum er nægilegt að skrifa "Til sölu: Ýmsir Playstation leikir" eða "Sölu- og kaupþráður Jóns" sem dæmi.
Tekið skal vel fram hvort viðkomandi (seljandi sem kaupandi) hafi ákveðna verðhugmynd eða óski eftir tilboðum. Einnig skal tekið fram hvernig viðkomandi vill láta hafa samband við sig (sími, skilaboð, svara í þræðinum) og skulu áhugasamir halda sig við aðferð/aðferðir sem auglýsandi tekur fram. Ennfremur skal tekið fram hvernig afhending vörunnar fer fram (sótt, hittast á ákveðnum stað eða sent).
Ástand vörunnar, hversu gömul og/eða mikið notuð hún er. Það skiptir að sjálfsögðu máli þegar kemur að sanngjörnu verði.
Ef um er að ræða fleiri en eina vöru er æskilegt að þráðurinn sé reglulega uppfærður svo áhugasamir geti fylgst með því hvaða vörur seljandi á enn til/hvaða vörur kaupanda vantar enn/hvaða vörum hefur ekki verið skipt.
5. Einungis áhugasamir skulu senda inn svar við auglýsingu (sé þess getið í auglýsingu að svör í þræðinum séu leyfð). - Engin óþarfa skítköst eða athugasemdir eru leyfðar. - T.d. að þú vitir um náunga sem er að selja vöruna ódýrar eða að ákveðinn leikur sé ömurlegur.
6. Þegar viðkomandi hefur lokið sínum viðskiptum að sinni skal breyta (e. modify) titli þráðarins og bæta við [SELT] fremst. - Þá geta stjórnendur lokað/eytt þræðinum svo ekki sé verið að endurvekja hann að óþörfu.
7. Öll sala á ólöglegum varningi, stolnum varningi er með öllu óheimil og varðar við lög.
8. Öll óviðkomandi hegðun gagnhvart fólki sem er að selja vöru í gegnum markaðninn, hvort að það er í formi athugasemda eða annars er ekki leyfð og getur leitt við viðvörunnar eða banns. Einnig er óþarfi að vera að svara markaðspóstum þegar enginn áhugi er fyrir vörunni sem er í boði.
Brot á þessum reglum getur leitt til þess að þræðinum sé læst/eytt og viðkomandi notandi áminntur. Síendurtekin brot geta haft í för með sér tímabundið bann eða jafnvel bann til lífstíðar. Á þetta bæði við auglýsendur og þá sem sýna auglýsingunni áhuga. Við tökum fram að allar innsettar færslur eru IP loggaðar.
Tilkynningar!
Call of Duty Classic gagnrýni eftir Pellaeon: Smelltu hér
Umræður um Call of Duty Classic gagnrýnina Smelltu hér
Velkomin(n) Playstation Spjall PSX.is
![]() |
Smelltu á "Skráning" takkann hérna efst til hægri til að skrá þig, eða "Innskrá" til að skrá þig inn. Vandræði með skráningu eða innskráningu? Sendu póst á admin@psx.is og fáðu hjálp! Kostir við skráningu.
|
| Guest Message by DevFuse | |
Síða 1 af 1
Reglur Markaðarins
Deila þessu umræðuefni
Síða 1 af 1
Innskrá
Skráning
Hjálp


Þetta umræðuefni er læst



Efst








