
Sælir PSXingar, ég var að koma af Inception í annað skiptið og ákvað að stofna þráð sem heldur undir allar þær kenningar og túlkanir sem þið hér á síðunni gætum komið með um hana.
Hvernig túlka ég myndina?
Þetta var ekki draumur:
Ég játa að það er hægt að koma með frekar sterk rök fyrir því að mest öll myndin sé draumur; ég segi mest öll vegna þess að í gegnum myndina kemur það tvisvar fyrir (með löngu millibili) að Cobb ákveður að snúa kringlunni til að staðfesta að hann sé í raunveruleikanum, kringlan dettur á hliðina í bæði skiptin. Hins vegar, eftir að Cobb prufar deyfingalyfið hjá Yusuf í Mombasa, fer hann inn á baðherbergi til að fríska upp á sig. Hann tekur fram kringluna og er við það að snúa henni þegar Saito truflar hann, eftir það snýr Cobb aldrei kringlunni fyrr en í enda atriðinu. Þetta þarf samt ekki endilega að þýða að kringlan hefði snúist endalaust ef Cobb hefði fengið tækifæri til að framfylgja því. Við hreinlega munum aldrei komast að því.
En aftur að ástæðunni fyrir því að myndin sé ekki draumur og að allt sem við sjáum sé rétt. Ég hef verið að vafra allskonar síður sem koma með sínar eigin túlkanir á myndinni en ég hef hvergi séð einhvern bera upp þá staðreynd að ef að þetta væri í raun draumur, ættu þau ekki að vakna þegar að þau deyja. Myndin tekur það skýrt fram að undir áhirfum sterkra verkjalyfa (sem var eina leiðin til að komast dýpra inn í huga manneskjunar, s.s. 3 lög eða fleiri,) myndi fólk ekki vakna heldur enda í limbó. Upp að þriggja-laga-loka-drauma-senunni höfðu aðalkarakterarnir dáið sex sinnum (án þess að telja með dauða Cobb og Mal sem sendir þau í limbó). Einfaldlega, ef að þetta væri allt draumur hefðu þau átt að enda í limbó í stað þess að vakna. Sérstaklega þegar litið er á þá staðreynd að þau voru stundum djúpt í öðrum draumum. (Cobb og Arthur voru í lagi nr. tvö í undirmeðvitund Saito, sem myndi gera það að lagi nr. 3 í undirmeðvitund Cobb. Ef þetta væri allt draumur Cobb það er að segja.) Það er líka frekar hæpið að einhver arkitekt gæti skapað nokkrar heimsborgir. (Japan, París, Mombasa, Sydney, Los Angeles.) Síðan komum við að loka 'skotinu'; Cobb snýr kringlunni, gengur út á veröndina og faðmar börnin sín, myndavélin snýst hægt aftur að eldhúsborðinu þar sem kringlan snýst áfram. Það lýtur út fyrir að hún muni ekki hætta að snúast, þegar hún byrjar að vagga, en reisir sig síðan aftur við. Síðan hverfur myndin í svart og áhorfandinn er skilinn eftir með mikilvægustu spurninguna: hættir hún að snúast eða heldur hún áfram?
Ég mun alltaf standa fastur á því að hún hafi verið nær því að detta en hver getur deilt um það.
Voila! Þar er túlkun mín á Inception komin, endilega tjáið ykkur um hvað þið haldið að hafi gerst og fáum smá fútt í þetta.
Innskrá
Skráning
Hjálp

Tilkynningar!





Efst

















