Playstation Spjall PSX.is: Skráningar eyðublað

Hoppa yfir í efni

Táknmynd Tilkynningar!

God of War 3 gagnrýni eftir Bumbuliuz: Smelltu hér

Umræður um God of War 3 gagnrýnina Smelltu hér


Skráningar skilmálar & Reglur

Til að halda áfram þá þarftu að samþykkja eftirfarandi:


Skilmálar spjallborðs & Reglur

Almennar reglur vegna notkunar vefseturs ÍPS.

- Allir skráðir notendur ÍPS samþykkja með notkun vefseturs ÍPS neðangreinda skilmála og reglur.

- Stjórnendur áskilja sér rétt til þess að bæta við, taka út eða laga til skilamálana án fyrirvara hvenær sem er.

- Nánari upplýsingar um PSX.is má finna með því að smella á þennan tengil.


1. Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á vefsetri ÍPS í hverri mynd sem hún kann að vera. Þeir kunna að vera endurskoðaðir án fyrirvara ef þörf krefur. Ef skilmálar þessir eru brotnir getur það valdið tafarlausu banni án fyrirvara.

2. ÍPS mun eftir fremsta megni tryggja öryggi og trúnað samfélagsmanna og þeirra gagna sem þeir kunna að geyma á vefsetri ÍPS. ÍPS ber þó hvorki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast af notkun né ef ekki er hægt að nota þjónustuna af einhverjum ástæðum. ÍPS ber ekki ábyrgð á umræðum sem kunna að tapast eða skemmast sem geymd eru á vefsetrinu.

3. Haga skal notkun í samræmi við góða siði og umgengnisreglur sem almennt eru viðurkenndar á Internetinu. Ærumeiðingar, tilhæfulausar ásakanir og árásir á aðra notendur eru ekki liðnar. Fólk sem hefur það eina markmið að koma af stað rifrildum, eru ekki umbornir. Stjórnendur umræðusvæða og yfirstjórnendur ÍPS meta það hverju sinni hvort viðkomandi notandi sé slíkt fólk eður ei. Notendur eru beðnir um að velja “Tilkynna” takkann ef þeir sjá eitthvað sem brýtur á bága við þetta.

4. Óheimilt er að nota aðgang annarra. Þar með talið er óheimilt að lána óviðkomandi aðgangsorð, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annarra eða nota á annan hátt gögn eða samskipti sem tilheyra öðrum.

5. Óheimilt er að nota aðganginn til að að brjótast inn eða að reyna að brjótast inn í tölvukerfi eða tölvunet annarra eða til að valda tjóni á búnaði eða gögnum. ÍPS ber ekki ábyrgð á því tjóni sem slíkt kann að valda.

6. Óheimilt er að trufla samskipti eða valda óeðlilegu álagi á vefþjóni ÍPS (PSX.is). Óumbeðnar fjöldasendingar eru með öllu óheimilar.

7. Óheimilt er að birta efni á vefsetri ÍPS sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennri velsæmi, þar með talið ærumeiðandi efni. Notendur eru beðnir um að velja “Tilkynna” takkann ef þeir sjá eitthvað sem brýtur á bága við þetta. Einnig er óheimilt að senda inn efni sem er háð höfundarrétti án leyfis rétthafa og það á t.d við; tölvuleiki, tónlist, kvimyndir og þannig efni.

8. ÍPS áskilur sér rétt til að ákvarða hvort tiltekin samskipti teljast brjóta í bága við þessar reglur.

9. ATH SÉRSTAKLEGA: Umræður um skrifuð eintök af leikjum eða annað sem tengist ólöglegri afritun og notkun leikja er með öllu óheimil hér á ÍPS (PSX.is). Umræður um "modkubba" eru óleyfilegar með öllu. Umræða um firmware breytingar og homebrew á PSP eru með öllu bannaðar. Eina umræðan um þessi mál sem er leyfð verður um Linux uppsetningar og að skipta um harðan disk í vélinni eins og Sony talar um í bæklinginum.

10. “Tilkynna” takkinn er alls ekki til þess að svara póstum heldur en hann til þess að tilkynna stjórnendum að skilmálar ÍPS hafa verið brotnir. Ógætileg notkun á “Tilkynna” takkans varðar við refsingu (t.d. banni í nokkra daga).

11. Fyrirtækjum og stofnunum er með öllu óheimilt að birta í hvers konar formi auglýsingar eða ábendingar um vörur sínar á www.psx.is án þess að setja sig í samband við stjórnendur. Einnig er með öllu óheimilt nema með sérstöku leyfi frá stjórnendum PSX.is, að auglýsa leiki/getraunir á PSX.is sem birtar eru á öðrum vefsíðum. Senda má slíkar beiðnir á stjorn hjá psx.is. Hið sama gildir um vefsíður sem vilja auglýsa sig sérstaklega á vefsvæði PSX.is.

12. Notandi á ÍPS er persónulega ábyrgur fyrir öllu efni sem hann birtir á spjallinu og öllum umræðum sem hann sendir inn. Stjórnendur, ritstjórar og Netsamskipti ehf.(bakhjarlar ÍPS) geta ekki undir neinum kringumstæðum borið ábyrgð á orðum og athöfnum notenda.

13. Alger óþarfi er að flæða spjallborðið með tilgangslausum póstum um rugl málefni, flamebait þræði sem er vitað mál að enda bara í vitleysu, óviðeigandi efni sem er ekki hæfi yngri en 18 ára og að svara þráðum með bara hástöfum eða fylla með brosköllum og öðrum fígúrum. Aðeins er leyfilegt að bumpa umræðuefni einu sinni á dag.

14. Notendur síðunnar, mega ekki vera með prófílmynd eða annað í undirskriftinni sem er ekki viðeigandi fyrir 18 ára og yngri og annað sem getur valdið öðrum áreiti, skaða eða almennt farið ílla í fólk.

15. Undirskriftir: Mest 5 línur og hver lína má innihalda mest 80 stafi. Einungis er hægt að hafa eina mynd í undirskrift og skal hún ekki vera meira en 50kb að stærð, 600px á breiddina og 150px á hæð.

16. Þeir sem gera tilraun til þess að skrá annan aðgang til þess að komast framhjá banni eða takmörkunum verða útilokaðir af þessari vefsíðu í óákveðinn tíma.

17. Öll umræða um torrent og niðurhal á höfundarvörðu efni er óheimil á PSX.is.

18. Við biðjum alla um að vanda málfar og stafsetningu, einnig að sleppa því að setja inn tilgangslaus bréf á spjallborðið. Það er ekkert jafn leiðinlegt og að lesa ílla skrifuð tilgangslaus bréf.

Síðast uppfært 11.3.09

Stjórnendur PSX.is munu ekki eyða út notendanöfnum né bréfum nema í einstökum tilfellum þar sem t.d. notandi hefur skráð sig oftar en einu sinni. Með því að eyða út notandanafni/bréfum/svörum er verið að slíta umræðuefni úr samhengi. Notandur eru því beðnir um að skrá sig aðeins einu sinni og gæta orða sinna á vefsíðunni.

Reglur Markaðarins má finna með því að smella á þennan tengil.